Sveitaheimsókn
Komdu í skemmtilega sveitaheimsókn með fjölskyldunni! Börnin fá að klappa hestunum, hundunum og kettinum og stundum erum við með heimalinga. Síðan er hægt að skoða torfhesthúsið og nýuppsettu (vor 2025) sýninguna okkar um íslenska fjárhundinn.
Við gefum okkur tíma til að spjalla við ykkur og svara spurningum.